Stjörnuleikshátíð

hag / Haraldur Guðjónsson

Stjörnuleikshátíð

Kaupa Í körfu

ÞAÐ var mikið líf og fjör á stjörnuleikshátíð Körfuknattleikssambandsins á laugardaginn, en hátíðin fór að þessu sinni fram í Dalhúsum í Grafarvogi. Þar var stjörnuleikur beggja kynja, þriggja stiga keppni og troðslukeppni auk þess sem gamlir landsliðsmenn öttu kappi við þekkta einstaklinga úr þjóðlífinu. Iceland Express lið kvenna lagði Shell-liðið 103:85 þar sem Heather Ezell úr Haukum fór á kostum, gerði 29 stig, tók 13 fráköst og átti 10 stoðsendingar. Hún var valin besti leikmaður leiksins. MYNDATEXTI Magnús Gunnarsson hitti best allra í þriggja stiga skotunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar