Golf á aðventu

Golf á aðventu

Kaupa Í körfu

KYLFINGAR á Húsavík hafa tekið veðurblíðunni á aðventunni fagnandi. Hópur golfara iðkaði íþrótt sína á Katlavelli um helgina og þeir Ásmundur Bjarnason, 82 ára, Magnús Andrésson, 78 ára, og Stefán Þórsson, unglingurinn í hópnum, 64 ára gamall, hafa varla misst dag úr að undanförnu. „Það hefur verið frábært að geta skotist í golf þessa tvo tíma sem birtan leyfir,“ sagði Ásmundur í spjalli í gær. Þessi margreyndi íþróttagarpur og keppandi í spretthlaupum á tvennum Ólympíuleikum á árum áður gat reyndar ekki mætt í gærmorgun vegna lítilsháttar íþróttameiðsla. MYNDATEXTI Magnús og Stefán Þórsson eru mjög ánægðir með að komast í golf á þessum árstíma. Magnús segir tíðina núna þó ekkert einsdæmi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar