Sjósund
Kaupa Í körfu
HLEGIÐ var að kappklæddum blaðamanni þar sem hann skalf sem hrísla í frostinu og taldi hausa í heitum potti ylstrandarinnar í Nauthólsvík um hádegisbil í gær. Laxableikir líkamar voru alls staðar um kring og nokkrir hvítir á göngu út í sjó. Sífellt fleiri sækja í sjóinn á Þorláksmessu til að eiga kalda kyrrðarstund fjarri alræmdu jólastressinu. Vel á annað hundrað manns skelltu sér í sjóinn á meðan blaðamaður norpaði og saup á heitu súkkulaði. Örlaði á skömm þegar telpur tvær á baðfötunum einum fata skokkuðu framhjá og stungu sér til sunds. Steininn tók úr þegar þær glaðlegar gæddu sér á frostpinna að sundinu loknu. MYNDATEXTI Rithöfundurinn Gerður Kristný las upp jólaljóð sem fylgdi jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Gestir supu á heitu súkkulaði og yngsta kynslóðin nartaði í frostpinna
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir