Fjölskylduhjálp - Papco

Fjölskylduhjálp - Papco

Kaupa Í körfu

PAPCO efndi í desembermánuði til styrktarsöfnunar þar sem ein rúlla af hverri seldri pakkningu af hreinlætispappír í jólaumbúðum rann til líknarfélaga sem úthluta nauðsynjavörum til bágstaddra. Söfnunin gekk vonum framar og er styrktarpappírinn nú víðast hvar uppseldur. Þúsundir rúlla af hreinlætispappír hafa í staðinn runnið til heimila með lítil efni í desember. Það voru mæðrastyrksnefndir um landið, Rauði kross Íslands, Hjálparstofnun kirkjunnar og Fjölskylduhjálp Íslands sem sáu um að koma hreinlætispappírnum til skila.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar