Jólaball

Jólaball

Kaupa Í körfu

JÓLABÖLL með skemmtilegum og orðheppnum jólasveinum og jafnvel móður þeirra, henni Grýlu, stytta börnum um land allt biðina til jóla. Sveinki gefur börnunum bragðgóðan glaðning eða lítinn pakka og dansar svo með þeim í kringum jólatréð ef hann má vera að. Börnin fara í sparifötin og sýna sínar bestu hliðar enda ekki eftirsóknarvert að lenda í jólakettinum. MYNDATEXTI Hvað segiru? Á jólaballi Morgunblaðsins stóðu börnin sum hver upp til að heyra betur boðskap jólasveinsins og Grýlu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar