Erna Ómars

Erna Ómars

Kaupa Í körfu

DANSARINN og danshöfundurinn Erna Ómarsdóttir og tónlistarmaðurinn Valdimar Jóhannesson komu fram sem hljómsveitin Lazy Blood í Norræna húsinu í hinu margumtalaða jóladagatali í fyrradag. Þau fluttu lög sem náðu yfir allan skalann, frá angurværð yfir í harðkjarna. Erna fór mikinn að vanda og gerðist söngur hennar svo hávær á tímabili að einhverjir foreldrar ákváðu að hlífa börnum sínum við honum og yfirgáfu húsið. Jóladagatal hússins er enda ekki hugsað sem barnaskemmtun heldur hafa ýmsir listamenn troðið þar upp úr ólíkum listgreinum. MYNDATEXTI Hmm... Hvað skyldi þessi hafa verið að hugsa?

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar