Útreiðar í Víðidal

Útreiðar í Víðidal

Kaupa Í körfu

KÁRI blessaður hefur verið í jötunmóð undanfarna daga, í það minnsta ef litið er til hitastigsins. Reiðmenn í Víðidal í Reykjavík urðu fljótt rjóðir í kinnum og frísklegir í fasi við útiveruna í gær og viðbúið að fákarnir hafi verið fegnir að spretta úr spori. Í dag er áfram spáð köldu veðri og að dragi úr úrkomu víðast hvar. Hægviðri er í kortunum og því upplagt að leggja í frekari útiveru.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar