Við fyrirsætustörf í Vatnsmýri

Við fyrirsætustörf í Vatnsmýri

Kaupa Í körfu

HELDUR voru þau skjóllítil klæðin sem klemmd voru utan á fyrirsætuna sem þurfti að sitja fyrir hjá ljósmyndara í Vatnsmýrinni í gær þegar frostið var um sjö stig. Væntanlega hefur átt að fanga fallega vetrarstemningu en gera má ráð fyrir að stúlkunni hafi verið nokkuð kalt enda leynir harðindasvipurinn sér ekki á andliti hennar. Það er mikið á sig lagt fyrir fyrirsætuframann og vonandi að henni hafi ekki orðið meint af.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar