Orðuveiting á Bessastöðum
Kaupa Í körfu
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum á nýársdag. Þeir sem fengu fálkaorðuna eru: Áshildur Haraldsdóttir tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar. Einar Kárason rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu löggæslu og félagsmála. Helgi Seljan, fyrrverandi alþingismaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á opinberum vettvangi og í þágu bindindis- og velferðarmála. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir í fiskifræði og hafvísindum. Högna Sigurðardóttir arkitekt, Frakklandi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar húsagerðarlistar. Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri og skipstjóri, Stykkishólmi, riddarakross fyrir frumkvæði í ferðaþjónustu. Ragnhildur Guðrún Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, riddarakross fyrir störf í þágu samfélagshjálpar. Sigríður Jóna Kristjánsdóttir útskurðarmeistari, Grund II, Flóahreppi, riddarakross fyrir framlag til þjóðlegrar listar. Sólveig Guðlaugsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur á barna- og unglingageðdeild Landspítala, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðismála og umönnunar ungmenna.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir