Stjarnan - Fram

Stjarnan - Fram

Kaupa Í körfu

Það er alltaf gaman að vinna Stjörnuna, ekki síst á heimavelli hennar,“ sagði Íris Björk Símonardóttir, markvörður Fram, glöð í bragði, eftir að Fram vann öruggan sigur á Stjörnunni, 31:27, í N1-deild kvenna í handknattleik í Mýrinni í Garðabæ í gærkvöldi. Fram var marki yfir í hálfleik, 15:14, eftir að Íslandsmeistarar Stjörnunnar höfðu verið sterkari framan af hálfleiknum. MYNDATEXTI Stella Sigurðardóttir lék vörn Stjörnunnar á tíðum grátt í gær. Hér kemur Stella skoti á mark án þess að Harpa Sif Eyjólfsdóttir fái rönd við reist.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar