Borðtennis

Borðtennis

Kaupa Í körfu

MAGNÚS K. Magnússon og Magnea Ólafs úr Víkingi sigruðu í meistaraflokkum karla og kvenna á stigamóti í borðtennis, Adidasmótinu, sem haldið var í TBR-húsinu á laugardaginn. Magnús vann félaga sinn úr Víkingi, Magnús Finn Magnússon, í úrslitaleik í meistaraflokki karla, 3:0. Loturnar enduðu 11:8, 11:7 og 11:8. Bjarni Bjarnason úr HK og Daði F. Guðmundsson úr Víkingi höfnuðu í 3.-4. sæti. Magnea vann Bergrúnu Björgvinsdóttur úr Dímon í úrslitaleik í meistaraflokki kvenna, 3:1. Loturnar enduðu 11:4, 7:11, 11:7 og 11:9. Eyrún Elíasdóttir hafnaði í þriðja sæti. MYNDATEXTI Annar Magnús Finnur Magnússon lék til úrslita í meistaraflokki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar