Benoit John

Benoit John

Kaupa Í körfu

Það var erfitt að yfirgefa fólkið á Haítí þegar manni finnst maður eiga að hjálpa. En það var mikilvægt að geta tryggt öryggi fjölskyldunnar,“ sagði Benoit John, flóttamaður frá Haítí, sem lenti á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun. Vél Icelandair sem flutti björgunarsveitarmennina út sneri aftur til landsins í gær með sex farþega innanborðs. Þ.ám. var Benoit og eiginkona hans og þrjú börn. Benoit óttaðist mjög um afdrif fjölskyldu sinnar fyrst eftir skjálftann. Þegar hann kom heim úr vinnunni sá hann að þau voru heil á húfi, en margir nágranna þeirra höfðu hins vegar misst fjölskyldur sínar. MYNDATEXTI Benoit John og fjölskylda hans héldu áfram til Þýskalands í gær. Hann segir það hafa verið erfiða ákvörðun að yfirgefa Haítí.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar