Réttur kvikmyndaður

Réttur kvikmyndaður

Kaupa Í körfu

TÖKUR á annarri þáttaröð af Rétti, sem sýnd verður á Stöð 2 í mars, fóru fram við Alþingishúsið í gærkvöldi. Þar komu leikararnir Gunnar Hansson og Magnús Jónsson við sögu en sá síðarnefndi fer með aðalhlutverkið. „Þarna er skjólstæðingur aðalsöguhetjunnar Loga Traustasonar búinn að fá nóg af lánardrottni sínum, sem er bankinn, og það er verið að reyna að ná honum niður af þaki Alþingishússins. Það má segja að þetta atriði endurspegli á einhvern hátt ástandið sem er búið að vera hér í þessu landi,“ segir Sigurjón Kjartansson, einn handritshöfunda þáttarins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar