Mugison

Mugison

Kaupa Í körfu

VERKEFNI landkynningarátaksins Iceland Naturally fyrir árið 2010 voru kynnt í gær, en ætla má að þau muni miðla jákvæðri ímynd Íslands til um 30-40 milljóna íbúa Norður-Ameríku. Meðal þeirra verkefna sem ráðist verður í eru kynningar á íslenskum sjávarafurðum og á endurnýjanlegri orku. Íslenskir úrvalskokkar munu elda fyrir almenning og haldnir verða tónleikar, kvikmynda- og listahátíðir vestanhafs. Pétur Þ. Óskarsson, formaður stjórnar verkefnisins, segir að í ár verði starfið öflugra en nokkru sinni enda sé jákvæð kynning á Íslandi eitt af lykilatriðum endurreisnar íslensks efnahagslífs. MYNDATEXTI Vinsæll Listamaðurinn Mugison tók lagið á kynningu Iceland Naturally.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar