Vinnuslys - kranastjóri

Jón Svavarsson

Vinnuslys - kranastjóri

Kaupa Í körfu

Vinnuslys við Grandagarð KRANASTJÓRI var fluttur slasaður á Sjúkrahús Reykjavíkur í gærmorgun eftir vinnuslys við Grandagarð. Hann hlaut höfuðáverka er hann rak höfuðið í járnbita við tveggja metra fall eftir að hafa skrikað fótur á hálli undirstöðu á krananum. Að sögn læknis á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hlaut maðurinn ekki alvarleg meiðsli, en var lagður inn til eftirlits. Fulltrúi frá Vinnueftirliti ríkisins kom á vettvang og kannaði aðstæður á slysstað. (Vinnuslys varð er maður féll af bílkrananum og rakst með höfuðið í járnbita við togaran Frera.)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar