Stákur - stelpa

Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Stákur - stelpa

Kaupa Í körfu

Hann kvartaði lengi vel undan því að stelpur kynnu ekki að leika sér og töluðu bara saman. Hann vildi vera í tölvuleikjum eða úti í fótbolta. Hann hefur aldrei átt neina samleið með stelpum, enda er hann strákur fæddur í röngum líkama. Við töldum í fyrstu að hún væri samkynhneigð af því að hún var alltaf svo skotin í stelpum. Þegar hún var sex ára sá hún þátt í sjónvarpinu þar sem tvær konur voru að gifta sig og varð mjög upptekin af því. Hún hafði svo greinilega átt í miklum samræðum við vini sína um þennan tiltekna þátt því þegar hún kom heim úr skólanum tveimur dögum seinna sagði hún hæstánægð: „Mamma, þegar ég er orðin stór get ég farið í aðgerð og fengið typpi.“ Ég sagði bara: „Já, elskan mín. Við skulum ræða þetta seinna.“ Svo hugsaði ég: Æ hvað hún er mikil strákastelpa,“ segir móðir unglings sem hefur nýlega hafið ferlið að láta leiðrétta kyn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar