EM 2010 - ÍSLAND

EM 2010 - ÍSLAND

Kaupa Í körfu

Nánast allar æfingar íslenska landsliðsins í handbolta hefjast með fótboltakeppni þar sem ungir leika gegn þeim eldri. Á meðan þjóðin nagaði á sér neglurnar af spennu gleymdu landsliðsmennirnir öllu ytra áreiti í hörkufótboltaleik í Vín í gær. Sturla Ásgeirsson hreinsar hér frá marki eins og gamalreyndur hægri bakvörður áður en Ásgeir Örn Hallgrímsson og Björgvin Gústavsson ná til hans. Þess má einnig geta, fyrir þá sem ekki vita, að Ísland leikur gegn heims- og ólympíumeistaraliði Frakklands í dag kl. 13 í undanúrslitum Evrópumótsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar