Snúður snæddur

Snúður snæddur

Kaupa Í körfu

Ísfirðingar og aðrir Vestfirðingar hafa síðustu daga fagnað hækkandi sól, er hún sést aftur rísa yfir fjallsbrúnirnar. Þannig hélt Ísfirðingafélagið í Reykjavík sitt árlega Sólarkaffi í gærkvöldi. Þessar ungu dömur á Ísafirði tóku forskot á sæluna í vikunni er þær snæddu nestið sitt á Silfurtorginu í blíðviðrinu. Súkkulaðisnúður og svaladrykkur minnir okkur að mörgu leyti á að það styttist í sumar og sól með degi hverjum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar