Næturvaktin

Heiðar Kristjánsson

Næturvaktin

Kaupa Í körfu

FÉLAGARNIR úr Vaktaþáttunum; þeir Georg, Ólafur Ragnar og Daníel, sneru aftur í gærkvöldi á kunnuglegar slóðir, bensínstöðina við Laugaveg þar sem Vakta-ævintýrið hófst með Næturvaktinni. Verkefnið var þó af öðrum toga, að taka upp efni í sjö stutt innslög til að minna Íslendinga á mikilvægi kvikmynda- og þáttagerðar og vekja athygli á niðurskurði ríkisins á styrkjum til kvikmyndagerðar og þeim fyrirætlunum ríkisútvarpsins að skera hressilega niður í innkaupum á íslensku, leiknu sjónvarpsefni og kvikmyndum. MYNDATEXTI Ragnar Bragason leikstjóri var vel stemmdur. Ragnar hefur verið kraftmikill í réttindabaráttu kvikmyndagerðarmanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar