Nauthólsvegur

Nauthólsvegur

Kaupa Í körfu

NAUTHÓLSVEGUR var opnaður fyrir umferð í gær en hann hefur hingað til gengið undir heitinu Hlíðarfótur. Vegurinn liggur frá Hringbraut út í Nauthólsvík. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sá um að klippa á borðann en henni til halds og trausts voru Kristján Möller samgönguráðherra, Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar, og Óskar Bergsson, formaður framkvæmda- og eignaráðs. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 480 milljónir króna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar