Leikskóladagur á Flúðum

/Sigurður Sigmundsson

Leikskóladagur á Flúðum

Kaupa Í körfu

BÖRNIN í leikskólanum Undralandi teiknuðu myndir af feðrum sínum eða öðrum karlmönnum úr fjölskyldunni í tilefni af karladegi í skólanum í janúar og létu ýmsar athugasemdir flakka. Allt er það gert til að fá feðurna til að tengjast betur starfinu í skólanum. Listafólkið mætti á opnun sýningar á verkum þess í verslun Samkaupa – Strax á Flúðum í gær. Tilefnið er Dagur leikskólanna sem haldinn er í dag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar