Toppstöðin kynnir breytta bíla

Toppstöðin kynnir breytta bíla

Kaupa Í körfu

SLENSKIR bílaframleiðendur kynntu framleiðslu sína í Toppstöðinni í Elliðaárdal sl. laugardag; sportbíla, jeppa, rútur og trukka. Þetta var í fyrsta sinn sem efnt er til kynningar á þessum hljóðláta iðnaði sem er í öruggum vexti. Sýndir voru nær þrjátíu spennandi bílar og svöruðu hönnuðir þeirra spurningum áhugasamra. „Íslenskur bílaiðnaður er í stöðugum vexti og margar áhugaverðar hugmyndir í þróun. Sérstaklega hefur áhugi á bílum sem knúnir eru innlendum orkugjöfum aukist mikið,“ segir Ari Arnórsson bílahönnuður í Toppstöðinni. Það kom líka á daginn, eins og vel sést á þessari mynd, að áhugi manna á rafbílunum er býsna mikill og margt forvitnilegt er undir húddinu á bílnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar