Melabúðin selur saltkjöt beint úr tunnunum

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Melabúðin selur saltkjöt beint úr tunnunum

Kaupa Í körfu

Sprengidagur Pétur Guðmundsson með saltkjöt SALTKJÖTIÐ rýkur út hjá Pétri Alan Guðmundssyni í Melabúðinni. Hann á líka von á að það seljist upp eins og undanfarin ár, þrátt fyrir að söltuð séu 3-4 tonn af kjöti. „Þetta er saltað eins og pabbi gerði alltaf,“ segir hann. Faðir hans, Guðmundur Júlíusson, raðaði kjöti og salti lagskipt með gamla laginu og lagði í saltpækil. Það skilar léttsöltuðu kjöti sem þeir sem reynt hafa kunna vel að meta. „Fólk kemur alls staðar af höfuðborgarsvæðinu, jafnvel úr Hafnarfirði og Mosfellsbæ, til að kaupa saltkjötið,“ segir Pétur sem mun líka gæða sér á herlegheitunum ásamt fjölskyldu og starfsfólki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar