Skokkað við Geldinganes

Skokkað við Geldinganes

Kaupa Í körfu

Skokkað í síðdegissólinni í Grafarvogi SÍFELLT fleiri hlaupa sér til heilsuræktar eins og vel sést á göngustígum, eða hlaupastígum, borgarinnar. Þá hefur þátttaka í almenningshlaupum vaxið gríðarlega á undanförnum árum og sem dæmi má nefna að 346 hlauparar luku 10 km Powerade-hlaupi sl. fimmtudag. Aukinn áhugi á hlaupum er ekki bundinn við Ísland því svipuð þróun hefur orðið undanfarin ár annars staðar á Vesturlöndum. Ísland hentar á margan hátt ágætlega til hlaupa, nóg er af brekkum, feikinóg pláss og veðrið er nánast aldrei of vont til að skella sér út.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar