Aðalsteinn Jón Þóruson

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Aðalsteinn Jón Þóruson

Kaupa Í körfu

Aðalsteinn Jón Þóruson kallar sig Steina Glimmer á Facebook en hann er mikill áhugamaður um tísku og fatahönnun. Ég bjó sjálfur til nafnið Steini Glimmer þar sem ég er svolítið mikið fyrir glimmer og glamúr. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tísku og var ekki nema sjö ára þegar mamma var farin að leita ráða hjá mér í hverju hún ætti að fara út. Í dag starfa ég í fataverslun á Laugaveginum í eigu Sportís sem selur útivistarfatnað og annan klæðnað. Ég stunda nú fatahönnunarnám í sniðbreytingum og saum hjá Mími símenntun. Síðan stefni ég á fatahönnunarnám í Iðnskólanum til að byrja með og síðan jafnvel frekara nám erlendis, segir Steini

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar