Solo 2010

Solo 2010

Kaupa Í körfu

Undankeppni fyrir Stora Daldansen Gígja Jónsdóttir Á MIÐVIKUDAGINN var spreyttu ungir og upprennandi dansarar sig á sviði Íslensku óperunnar en um var að ræða undankeppni fyrir Stora Daldansen, norrænu einstaklingskeppnina í klassískum listdansi, sem haldin verður í Falun í Svíþjóð 13.-15. maí nk. Minningarsjóður Svandísar Þulu Ásgeirsdóttur mun veita vinningshöfum styrk til utanfarar en sjóðurinn var stofnaður 2. desember 2008 þegar tvö ár voru liðin frá því Svandís lést í bílslysi aðeins fimm ára gömul. Minningarsjóðurinn styrkir meðal annars unga ballettdansara en Svandís Þula hafði stundað ballettnám í Ballettskóla Eddu Scheving í rúm tvö ár þegar hún lést.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar