Bikarmót FSÍ

Bikarmót FSÍ

Kaupa Í körfu

GERPLA úr Kópavogi landaði fimm titlum á bikarmóti Fimleikasambands Íslands í áhaldafimleikum sem fram fór um helgina. Gerpla sigraði í frjálsum æfingum í liðakeppni í karla og kvennaflokki. Að venju var mótið þrepaskipt þar sem reyndustu keppendurnir keppa á 5. stigi. Þar sigraði Gerpla í karlaflokki, og Ármann í kvennaflokki. Ármann sigraði í 4. þrepi hjá báðum kynjum. Strákarnir úr Björk Hafnarfirði sigruðu í 3. þrepi og Ármann í kvennaflokknum. Á 2. þrepi sigraði Gerpla hjá báðum kynjum. Ármann sigraði í karlaflokki í 1. þrepi og Björk í kvennaflokki. Ómar Óskarsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, var í Versölum og hér má sjá brot af þeim myndum sem hann tók.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar