Oddvitar framboða til borgarstjórnarkosninga í HR

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Oddvitar framboða til borgarstjórnarkosninga í HR

Kaupa Í körfu

ODDVITAR Í BORGINNI TÓKUST Á Á OPNUM FUNDI ODDVITAR átta framboða fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík tókust á í hádeginu í gær á opnum fundi sem Háskólinn í Reykjavík stóð fyrir í salarkynnum sínum, í beinni útsendingu á mbl.is. Meðal þess sem kom fram á fjölsóttum fundinum var að Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri ítrekaði hugmynd sína um að allir flokkar tækju sig saman að loknum kosningum og störfuðu saman í „þjóðstjórn“. Borgarfulltrúarnir 15 ættu allir að vera í vinnu fyrir borgarbúa. Sjö menn í minnihluta ættu ekki bara að vinna við það að gagnrýna hina átta í meirihlutanum, sem myndu svo sjá um allt. Ekkert væri í lögum um að þannig ætti að vinna hlutina. Einar Skúlason, oddviti framsóknarmanna, sagði Hönnu Birnu hafa staðið sig vel sem borgarstjóra en ef mynduð yrði „þjóðstjórn“ yrði borgarstjórinn að vera ópólitískur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar