Hestamenn og jóreykur við Rauðavatn

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hestamenn og jóreykur við Rauðavatn

Kaupa Í körfu

Fjörlegir fákar og menn við Rauðavatn Nú lifna runnar og tré við Rauðavatn hratt enda á sumarið að vera komið og talsvert er farið að hlýna eftir frekar kaldan aprílmánuð. Hestamenn eru flestir duglegir við útreiðar að vetrarlagi og þjálfa sig og hestana þrátt fyrir kuldaköst og snjóalög en óneitanlega verður reiðtúrinn sérstaklega skemmtilegur í góðu veðri eins og var í gær, uppstigningardag. Þessi hópur hestamanna naut frídagsins í góðum félagsskap við þessar glæsilegu skepnur. Sást jóreykurinn langt að og var augljóslega mikið fjör, bæði í fákum og fólki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar