ABL Akureyri

Skapti Hallgrímsson

ABL Akureyri

Kaupa Í körfu

Það er alltaf gaman þegar fólk lætur drauminn rætast. Þrjár vinkonur hafa nú komið sér fyrir í Hrísalundi, þar sem þær eru með flotta opna vinnustofu og gallerí. Þetta eru Anna Fía Svavarsdóttir, Björk Traustadóttir og Linda Tulinius. Þær nota upphafsstafi sína í nafna á vinnustofuna og kalla hana ABL; þessar öflugu konur. „Við erum bjartsýnar konur sem langaði að gera eitthvað skemmtilegt,“ sagði Anna Fía við blaðamann, en hún vinnur í leir eins og Linda. Björk handmálar á föt, myndir og klukkur. Sjón er sögu ríkari. MYNDATEXTI ABL Björk Traustadóttir, Linda Túliníus og Anna Fía Svavarsdóttir í nýju vinnustofunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar