Gagnaver Thor Hafnarfirði

Gagnaver Thor Hafnarfirði

Kaupa Í körfu

Gagnaver Thor Data Center í Hafnarfirði var gangsett við hátíðlega athöfn í gær. Er þetta fyrsta gagnaverið sem tekur til starfa hér á landi. Við sama tækifæri var skrifað undir samning við norska tölvufyrirtækið Opera Software en það mun flytja gagnavörslu sína til Thor. Thor DC hefur unnið að stofnun ganaversins í eitt og hálft ár og segja forsvarsmenn félagsins að von sé á fleiri samningum við erlend fyrirtæki. Tíu sérfræðingar starfa við gagnaverið og er búist við að stöðugildi þrefaldist við lok næsta árs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar