Magnús Helgason 92 ára með bíl

Magnús Helgason 92 ára með bíl

Kaupa Í körfu

Fer í gönguferðir, iðkar leikfimi og dansar við fagrar konur Festi kaup á glænýjum bíl 92 ára - Kann best við sig í fatnaði frá Boss og á nýbónuðum bíl.„Það er lykilatriði að hreyfa sig nóg og hætta því ekki þó svo að árin færist yfir,“ segir Magnús Þór Helgason, fyrrverandi ökukennari, glaður í bragði. Hann segir góða heilsu sína byggjast á kröftugum göngutúrum árla dags, lífsgleði og léttri lund. Magnús Þór er fæddur frostavetursárið 1918 og verður 92 ára gamall á morgun, sunnudaginn 15. ágúst. Eiginkona Magnúsar Þórs lést fyrir nokkrum árum en hann lætur það ekki á sig fá þótt hann þurfi að búa einn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar