Ísland - Danmörk

Jakob Fannar Sigurðsson

Ísland - Danmörk

Kaupa Í körfu

Ég er viss um að skiptin eru rétti leikurinn í stöðunni hjá mér. Þegar maður er ungur þá skiptir mestu máli að fá tækifæri til þess að spila sem mest og öðlast reynslu og hjá Bergische fær ég tækifæri til þess,“ sagði Rúnar Kárason handknattleiksmaður þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gærmorgun. Hann skrifaði í fyrradag undir samning við þýska 2. deildarliðið Bergische HC um að leika með því til vors. Rúnar hefur í rúmt ár verið á mála hjá Füchse Berlín en átt erfitt uppdráttar og ekki fengið eins mörg tækifæri og vonir stóðu til í upphafi. Rúnar Kárason er farinn frá 1. deildarliði Füchse Berlín og genginn til liðs við Bergische í þýsku 2. deildinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar