Nestistími

Ernir Eyjólfsson

Nestistími

Kaupa Í körfu

Krakkar af leikskólanum Hlíðarberg settust og drukku nestið sitt í garði skammt frá Þjóðleikhúsinu. Þau voru að koma af Sögustundinni og fengu sér bita áður en þau lögðu í langt ferðalag. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Sumum liggur reiðinnar ósköp á en öðrum þykir í góðu lagi að bíða stundarkorn. Þessir ungu leikskólasveinar sem ljósmyndari hitti í gær tóku öllu af stóískri ró. Sátu með nestið sitt á bekk og biðu eftir næsta vagni – og framtíðinni sjálfri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar