Einar Orri Kristjánsson - Skemmtigarðurinn

Einar Orri Kristjánsson - Skemmtigarðurinn

Kaupa Í körfu

Hægt að stunda hópefli og skemmtilega leiki yfir veturinn - Líka hægt að breyta skrifstofunni í lazertag völl Þó svo kominn sé vetur er ekkert sem segir að ekki sé hægt að halda velheppnað hópefli eða starfsmannaskemmtun utanhúss. Einar Orri Kristjánsson hjá Skemmtigarðinum í Grafarvogi bendir til dæmis á að gráupplagt sé gera aðventuna skemmtilegri með ferð í lazer-tag eða litbolta í vetrarsnjónum. „Menn geta þá rennt sér í fönninni og tekið dýfur í skaflana ef því er að skipta. Ég er ekki frá því að tilþrifin séu meiri í snjónum heldur en þegar spilað er á sumrin,“ segir hann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar