Jóla miðbæjarrölt með Mæju

Jóla miðbæjarrölt með Mæju

Kaupa Í körfu

Jól - Lítil hnáta skoðar jóladót með móður sinni í blómaverslun á Skólavörðustígnum. Þar er búið að skreyta gluggana fagurlega hátt og lágt með jólaskrauti og innan dyra er margt sem fangar auga yngstu viðskiptavinanna. Enda bíða þeir oftast hvað lengst eftir jólunum sem virðast á stundum bara aldrei ætla að koma. Þá er gott að geta dreift huganum með því að fara í göngutúr um miðbæinn með mömmu og pabba til að skoða fallegt jóladót, benda þeim kannski á hvað mann langi að fá í jólagjöf og fá sér síðan hressingu til að hvíla lúin bein áður en haldið er heim á leið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar