Blaðamannafundur Æsufelli

hag / Haraldur Guðjónsson

Blaðamannafundur Æsufelli

Kaupa Í körfu

Mikil þátttaka er í undirskriftasöfnun þar sem skorað er á borgarstjórn Reykjavíkur að falla frá sameiningar- og breytingaráformum í leik- og grunnskólum sem og frístundaheimilum borgarinnar. Hreyfing foreldra- og hverfafélaga og annarra stendur að söfnun undirskriftanna, sem stendur til næstkomandi fimmtudags, 24. mars, þegar þær verða afhentar forystumönnum borgarinnar í Ráðhúsinu við Tjörnina. MYNDATEXTI Söfnun undirskrifta þar sem niðurskurði í skólamálum er mótmælt hófst á blaðamannafundi í Æsufelli í gær. Þær verða afhentar í Ráðhúsinu nk. fimmtudag. Við tölvuna standa, frá vinstri talið, Guðrún Valdimarsdóttir, formaður Samfoks, Tómas Hafliðason og Sveinn G. Gunnarsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar