Gay Pride 2011

Gay Pride 2011

Kaupa Í körfu

Gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman í miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn þegar gleðiganga Hinsegin daga fór fram. Ekki er hægt að segja annað en gangan standi svo sannarlega undir nafni því ekki aðeins voru þátttakendur í göngunni glaðir heldur mátti sjá bros á andlitum nær allra þeirra sem með henni fylgdust. Gaman var að fylgjast með hverjum skrautlega vagninum á fætur öðrum keyra hægt eftir Lækjargötunni og dundi taktföst tónlistin undir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar