Kaprifol strandar í höfninni á Þórshöfn

Líney Sigurðardóttir

Kaprifol strandar í höfninni á Þórshöfn

Kaupa Í körfu

Gat ekki lagst að bryggju vegna veðurs Flutningaskipið Kaprifol strandaði í höfninni á Þórshöfn um sjöleytið í gærmorgun. Skipið, sem skráð er í Kýpur, var að koma frá Noregi að sækja lýsisfarm til Þórshafnar þegar það lenti í erfiðleikum í höfninni snemma morguns. Það náðist á flot eftir þrjá tíma. Í kjölfarið stóð til að kafarar myndu kanna skemmdir skipsins, ef einhverjar væru. MYNDATEXTI: Strandað Flutningaskipið er frá Kýpur og var strand í höfninni á Þórshöfn í um þrjár klukkustundir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar