Söfnun í Veisluturninum fyrir handaágræðsluaðgerð

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Söfnun í Veisluturninum fyrir handaágræðsluaðgerð

Kaupa Í körfu

Haldin var fjáröflunarsamkoma með matarveislu og tónlist í Turninum við Smáratorg í Kópavogi í gær til styrktar Guðmundi Felix Grétarssyni sem missti báða handleggina í slysi árið 1998. Boðin voru upp nokkur listaverk og ljóst á svipbrigðunum að áhuginn var mikill. Guðmundur safnar nú fé á heimasíðu sinni, hendur.is, til að geta farið í handaágræðslu í Lyon í Frakklandi. Tekjurnar af miðasölunni í gær runnu allar í sjóð Guðmundar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar