Verslunin Rangá 80 ára

Verslunin Rangá 80 ára

Kaupa Í körfu

Verslunin Rangá í Skipasundi 80 ára í dag Rangá er ein af þessum gömlu góðu verslunum, þar sem allt fæst til alls. Við innganginn eru ullarsokkar, gjafavörur og gjafapappír og innan um nýlenduvörurnar og fersku vörurnar má meðal annars sjá leikföng og búsáhöld. MYNDATEXTI: Rangá hefur verið hverfisverslun Hafsteins B. Ólafssonar í meira en 30 ár. „Ég bý í Efstasundi og þarf því ekki að fara langt í búðina,“ segir hann. „Ég þarf aðeins að ganga nokkur spor og það er aðalatriðið.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar