Bauhaus

Bauhaus

Kaupa Í körfu

„Það eru nokkur skilti vitlaus og við erum á fullu að laga þetta, við höfum fengið þetta að utan,“ segir Halldór Ó. Sigurðsson, framkvæmdastjóri byggingavöruverslunarinnar Bauhaus, en ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á nokkur skringilega orðuð auglýsingaskilti fyrir utan verslunina í gær sem hefðu eflaust farið fyrir hjartað á mörgum íslenskukennaranum. Að sögn Halldórs komu öll skiltin við verslunina að utan. Þrátt fyrir að hafa vafist tunga um tönn við skiltagerðina verður verslun Bauhaus opnuð næstkomandi laugardag klukkan 8:00. Viðskiptavinir eru þó hvattir til að mæta fyrr enda mun verslunin byrja að dreifa happdrættismiðum á meðal viðskiptavina klukkan 7:00.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar