Kristinn E. Hrafnsson

Skapti Hallgrímsson

Kristinn E. Hrafnsson

Kaupa Í körfu

Spíralformið er eitt af grunnmynstrum lífsins, og raunar alheimsins. Í einkasýningu Kristins E. Hrafnssonar í Listasafninu á Akureyri er fólgin áminning um eðli þeirrar orku sem mótar tilveru okkar. Stór stálskúlptúr, Spírall, gengur í gegnum safnrýmið og virðist ætla að sprengja það utan af sér með snúningskrafti náttúrunnar – og rýmisskynjun áhorfandans fer á sannkallað flug. MYNDATEXTI Misvísun Myndlistarmaðurinn Kristinn E. Hrafnsson við eitt verka sinna á sýningunni Misvísun/Variation.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar