Stofnun og fyrirtæki ársins

hag / Haraldur Guðjónsson

Stofnun og fyrirtæki ársins

Kaupa Í körfu

Johan Rönning, Bernhard og Sæmark eru fyrirtæki ársins 2012. Þau voru valin í kjölfar árlegrar, nafnlausrar könnunar VR sem lögð var fyrir ríflega 20.000 starfsmenn íslenskra fyrirtækja. Í hópi stærri fyrirtækja (yfir 50 starfsmenn) hlaut raftækjaverslunin Johan Rönning hf. hæstu einkunn. Í hópi meðalstórra fyrirtækja (20-49 starfsmenn) var sigurvegarinn bílaumboðið Bernhard ehf. en fiskútflutningsfyrirtækið Sæmark í hópi minni fyrirtækja (færri en 20 starfsmenn). Sæmark hlaut hæstu einkunn sem gefin hefur verið í könnuninni frá upphafi eða 4,97 en hæsta mögulega einkunn er 5. MYNDATEXTI Gleði Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, afhendir Hugrúnu Harðardóttur, sölustjóra Sæmarks, verðlaunagripinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar