Kajakar og kanó undir Gullinbrú

Kajakar og kanó undir Gullinbrú

Kaupa Í körfu

Sjókajakræðarar hafa um hríð sótt í að æfa róður í strauminum sem myndast undir Gullinbrú í Grafarvogi í fallaskiptunum. Í gær var þar sjaldséðari fugl; tveggja manna kanó sem þeir Gísli H. Friðgeirsson og Örlygur Steinn Sigurjónsson reru af miklum þrótti. „Það eru ekki margir sem gera sér grein fyrir því að indjánar notuðu kanó sem straumvatnsbát,“ sagði Gísli sem er þaulvanur sjókajakróðri. „Þetta er merkilega skemmtilegt.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar