The Sixth sense

The Sixth sense

Kaupa Í körfu

Í tilefni frumsýningar kvikmyndarinnar Sjötta skilningarvitið (Sixth Sense) stóð Morgunblaðið á Netinu að leik ásamt Laugarásbíó, Japis og Hróa Hetti. Leikurinn gekk út á að svara spurningum sem birtust á Netinu. Dregið hefur verið í leiknum og bárust um 5.000 innsendingar. Vinningar í leiknum voru margir en glæsilegasti vinningurinn var Dreamcast-leikjatölva frá Japis. Á myndinni afhendir Hendrikka Waage, markaðsstjóri Japis, Ester Þorsteinsdóttur Dreamcast-leikjatölvu og miða á myndina, til hægri er Magnús Helgason en hann vann miða á myndina og Force Feedback-stýri fyrir PC-tölvur og einn leik. Lengst til vinstri er kynningarstjóri Laugarásbíós.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar