Margrét Gauja

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Margrét Gauja

Kaupa Í körfu

RÁÐGJÖF | Svör við spurningum um allt milli himins og jarðar UNGT fólk sem er að stíga sín fyrstu fullorðinsskref út í lífið er leitandi og gjarnan með höfuðið fullt af spurningum. Spurningarnar tengjast öllu milli himins og jarðar. Þær geta verið um ástarmál og kynlíf, fjármál, skóla og próf, heimilisaðstæður, þunglyndi, kynhneigð, vímuefni, nám eða vinnu erlendis, húsnæðismál og svo mætti lengi telja. Undanfarinn áratug hefur Hitt húsið verið með ráðgjafaþjónustu fyrir fólk á aldrinum 16-25 ára. Sálfræðingar, félagsfræðingar og hjúkrunarfræðingar hafa verið á staðnum til að taka á móti þeim sem vilja leita til þeirra, en síðustu tvö ár hefur einnig verið hægt að spyrja sérfræðinga ráða á Netinu á svokallaðri Tótalráðgjöf. MYNDATEXTI: Tótalráðgjöf: Rannsóknarmærin og lestarstjórinn Margrét Gauja.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar