Tumi Magnússon - Norræna húsið, sýningarsalur

Tumi Magnússon - Norræna húsið, sýningarsalur

Kaupa Í körfu

Tumi Magnússon, Hildur Bjarnadóttir, Marianne Hesselbjerg, Jette Gejl Kristensen, Leif Kath, Eva Öhrling og Bodil Nielsen - Titill samsýningar danskra og íslenskra myndlistarmanna sóttur í hljóðverk Kurt Schwitters, Ursonate - Rakete Rinnzekete nefnist samsýning danskra og íslenskra myndlistarmanna sem opnuð verður í dag kl. 16 í Norræna húsinu. Dönsku myndlistarmennirnir eru í myndlistarfélaginu Jylland en sýningarstjórinn er íslenskur, myndlistarmaðurinn Tumi Magnússon. Jylland fór þess á leit við Tuma fyrr á þessu ári að stýra sýningu félagsins og þá bæði í bænum Tistrup á Jótlandi og í Reykjavík og var sýningin í Danmörku opnuð í mars.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar