Eldur í Fernanda í Hafnarfjarðarhöfn

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Eldur í Fernanda í Hafnarfjarðarhöfn

Kaupa Í körfu

Til skoðunar er að reyna ekki frekar að slökkva eld í flutningaskipinu Fernanda og leyfa því að brenna. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir að langan tíma geti tekið fyrir eldinn að deyja út. Stjórnvöld eru að meta hvar sé best að fara með skipið. Nú stendur yfir samráðsfundur í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar með fulltrúum Landhelgisgæslu, Samgöngustofu, Hafrannsóknarstofnunar og Umhverfisstofnunar þar sem verið er að endurmeta aftur stöðuna. Flutningaskipið Fernanda er orðið umtalsvert laskað og því er gert ráð fyrir að finna stað sem fyrst til að koma skipinu á þar sem unnt er að halda slökkvistörfum áfram og láta þau efni sem þegar er kominn eldur í brenna upp, en um leið verja aðaltanka skipsins eins og kostur er en í skipinu eru um 100 tonn af olíu, eins og segir í fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Jón Viðar sagði eftir hádegið í dag að ekki lægi fyrir ákvörðun um næstu skref. Hann sagði mjög erfitt að slökkva eld í skipi þegar eldur væri kominn um allt skip. Staðan væri ekki lengur sú að menn væru að bjarga einhverjum verðmætum heldur að slökkva eld í brotajárni. Við þær aðstæður væri forgangsmál að tryggja öryggi slökkviliðsmanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar