Valur - FH handbolti karla

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Valur - FH handbolti karla

Kaupa Í körfu

„Ég er virkilega ánægður með liðið. Mér fannst við spila mjög vel á öllum sviðum í þessum leik, bæði sóknar- og varnarlega, hraðaupphlaupin voru fín og þetta var heilsteyptasti leikur FH- liðsins í vetur myndi ég segja,“ sagði Einar Andri Einarsson, þjálfari FH- inga, eftir góðan sigur á Val að Hlíð- arenda í gærkvöld, 25:23. FH hefur átt frábæra leiki í vetur en þessi var sá heilsteyptasti að mati Ein- ars. Undir það má taka. Það var meist- arabragur á leik liðsins, sérstaklega varnarleiknum, og sóknin hefði litið enn betur út ef ekki hefði verið fyrir stór- leik Hlyns Morthens sem hélt Val hreinlega inni í leiknum. Þetta er ekki fyrsti sigurinn sem firnasterk vörn, með Daníel Frey Andrésson afar stöð- ugan og góðan í markinu, leggur grunn- inn að FH-sigri

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar